

Ég hef verið duglegur við að skella mér út á lífið hérna í Ningbo og nú síðast á brjálað halloween ball hérna þar sem Elfar áorkaði það að verða nokkuð ölvaður og var kominn heim upp í rúm lang fyrstur í kringum 2 leitið, en ekki eftir að hafa tekið viltan dans með einhver stelpu sem hann man ekki neitt eftir en sem betur fer er maður umkringdur vinum sem getta fyllt inn í eyðurnar. svo er kínverskan orðin nógu góð til að leiðbeina Taxi bílstjóranum að stoppa og hleypa manni út í pínu stund þegar áfengið ákveður að koma aftur upp;-/ Þá er ég búinn að taka minn skamt, þá er það bara Fífa eftir af Íslendingunum að taka út sína ofurölvun, en nú þegar eru Klara, Katrín, Bergþóra og ég búinn með okkar skamt. Talandi um bari í kína þá lenti ég í svakalega furðulegu atviki hérna um daginn, Ég skrepp inn á karlaklósettið, ákveð að nýta mér pissuskálina þar sem básarnir voru uppteknir og jú svo sem ekkert furðulegt svo allt í einu er sett heitt handklæði á hálsinn á mér og byrjað að nudda á mér hálsinn, NUDDA Á MÉR HÁLSIN Á MEÐAN ÉG ER AÐ PISSA, stendur ekki maður fyrir aftan mig og er að nudda mig! ég fríkaði næstum út, þetta var svo furðulegt, ég vissi ekki alveg hvað ég ætti að gera, var næstum sprunginn úr hlátri. Svo þegar ég fór að þvo mér um hendurnar skrúfaði hann frá vaskinum, lét á mig sápu og nuddaði á mér bakið á meðan ég skolaði hendurnar, svo voru hendurnar þurkaðar, og ég labbaði út án þess að gefa honum typs þar sem ég var í allt of miklu sjokki. Hefðu átt að sjá svipin á mér þegar ég labbaði fram og hitt krakkan á barnum,


Ég keypti svo fallega peysu og Hettu/trefil sem ég elska út af lífinu, fann svo æðislega fake búð hérna að ég er að farast, og strákurinn sem vann þar sagðist geta pantað dót fyrir mig, við erum að tala um hræ ódýrar eftirlíkingar af fötum af the runway, ég þarf að nýta mér þetta óh já!!!
Smá spurning til ykkar, mynduð þið borða snakk með bláberjabragði, með gúrkubragði eða með italian? mér líst ekkert á það, enda held ég mér frá því.
Ég lofa að það líður ekki svona langt á milli blogga aftur. Er einhverstaðar með helling af dóti sem ég ættla að skrifa punktað niður, látum þetta vera gott í bili enda klukkan orðin margt hjá mér.

2 comments:
Hah vá! massíft töff mynd af þér með Ronald McDonald!
En ein spurning, afhverju sagðiru gæjanum ekki bara að piss off? Djöfull hefði ég fríkað út, en þú ert kannski bara orðinn vanur svona furðulegri athygli:P
Gott að þú ert búinn að taka út ofurölvunina, best að taka hana út snemma, þarftu ekkert að vera að stressa þig það sem eftir er:P
Elska þig mikið mikið mikið:*
Jei :) þú bloggaðir :) :) :)
Kv. Sunna
Sendu inn athugasemd