mánudagur, september 29, 2008

Skóli um helgina, já það er ekki beint sniðugt, en maður fær viku frí í staðin sem hefst einmitt á morgun, Merkilegt hvað sumar þjóðir eru duglegar við að gefa fólki frí, Malasía; flestir frídagar í heimi! Kína: viku frí fyrir þjóðhátíðardaginn sem er á miðvikudaginn, Ísland: frí á deginum sjálfum.

Ég skelti mér í verslunarferð í dag, sem væri svo sem ekkert merkilegt nema það að ég gekk inn í fataverslun, sem hvítur hávaxinn karlmaður fær maður töluverða athygli og er ég nokkuð vanur en það sem ég lenti í áðan var svakaleg. Sölufólkið er alveg einstaklega hjálpsamt hérna, eiginlega allt of enda eru flestar búðir of mannaðar og þau eiga að labba með þér og hjálpa þér að velja, en já eg labba semsagt inn í fatabúð, um leið og ég stíg inn stekkur ein stelpa á mig, byrjar að sína mér allt, spyr reynadar fyrst hvort ég tala kínversku ég segist geta talað smá, svo næ ég að slíta mig aðeins frá henni og skoða smá sjálfur, þá stekkur næsta á mig, heyri ég ekki í hinni "hey hann var minn!" svo allt í einu er ég inní mátunarklefanum með fimm stelpur fyrir utan klefan minn að rétta mér hverja flýkina á fætur annari, ég að labba fram og sýna þeim, þær að hjálpa mér í og úr fötunum, spjallandi við mig á kínversku og kommenta á mig "vá hvað þú ert með flott göt (neflokkurinn og eyrun)" fá að máta armböndin mín og já alveg að sýna mér einum of mikla athygli, ég hló bara að þessu og var samt nokkuð skömmustulegur enda frekar óþægilegt að hafa svona mikla athygli á mér. Það er kostur að maður getur hlerar hvað þau eru að segja, skilur eitt og eitt, "shei" er "myndarlegur" notað um stráka, gaman að heyra það á meðan maður er að inní klefanum að skipta yfir í næstu flýk fyrir þær.

Svo er það Putuoshan á morgun, Búddista eyja sem á að vera svakalega falleg, þar munum við slaka á á ströndinni og já skoða nokkur musteri og hafa það gaman. Shanghai djamm þar næstu helgi og já hver veit.

Kemur meira næst, var með alveg helling til að segja frá en er eitthvað svaklega blank í augnablikinu, muna að punkta þetta hjá mér yfir vikuna.

4 comments:

Berglind sagði...

elfar áttu ekki að vera að mæta í tíma í skólanum???
Þú virðist alltaf vera að ferðast og djamma, skamm skamm! er ekkert smá jelous.

Margrét.. sagði...

Hah sammála Berglindi, átti þetta ekki að vera framlenging á háskólanámi, ég get sko sagt þér það að ég er ekki á neinni helvítis búddistaeyju og hvað þá á shanghai djammi!

Samt gaman fyrir þig að fá svona mikla athygli.. Enginn furða að þú heyrðir orðið myndarlegur, enda alveg gordjös..

En heldurðu að þú getir skroppið til Íslands í svona viku, þarf þig í myndatöku, ok díll elskan?

Sveinn Enok Jóhannsson sagði...

ooooo hvað ég hefði viljað vera að fara til shanghai djamm... veistu ég mun koma í heimsókn til þín þó það verði bara yfir helgi.... ég er búin að klára bílskúrinn og er að fara að byrja á háaloftinu á morgunn... heyrðu og búin að festa kaup á Pool @ Bar... heyrðu og eitt við vorum að keyra í áttina að smára bíó, það koma svona ein gatnamót áður en maður sér smáralindinna það eru svona þrjár stórar rauðar blokkir á vinstri hönd og hesta hús á hægrihönd.... þú veist hvar allaveganna við vorum á gatnamótonum og þeir eru að búa til mislæg gatnamót og þá sagði ég önnur mislæg mistök og sagði síðan við margréti þetta er eithvað sem hann elfar hefði sagt og þá gáfum við frá okkur svona oooo.... við tölum ennþá um þig... hahaha mundu að reyna að finna klæðskera...

bæjó ;)

Bjarni sagði...

Helló...ummm...gæti alveg hugsað mér að liggja á strönd núna. Það er orðið svoooo kalt hérna bara allt í einu... rétt um frostmark takk fyrir. Ég alltaf í 66° norður. Have fun :) netbjallaðu í mig þegar þú getur.