þriðjudagur, september 16, 2008

可口可乐

Ningbo 宁波 er meira en ég bjóst við, ég gerði mér að sjálfsögðu einhverja væntingar um hvað borgin hefði upp á að bjóða en ákvað að vera ekki of von góður, brenndi mig aðeins á því þegar ég fór til Malasíu. En elskurnar mínar vá! Þessi borg er æði! Maður skellir sér í strætó í 20 mín og er kominn niðrí miðbæ fyrir 2 yuan 远 eða rétt rúmar 26 kr íslenskar núna hrópa víst þeir sem eru búsettir í Reykjanesbæ að þar sé ókeipis í strætó en það er smá munur á 14.000 og 5.000.000. Annars eru strætóarnir allveg pakkaðir flestar ferðirnar og þá er ég að meina stút fullir, gaman samt hvað kínverjar eru hjálpsamir, láta pening ganga fram til vagnsstjóran og allir hjálpast að við að láta þetta yfir fulla kerfi virka. athyglisvert hvað borgin breytist hratt, eina stundina ertu að horfa á hefðbundin kínversk hverfi þjóta framhjá svo allt í einu ertu kominn inn í miðborgina þar sem glerháhýsi standa meðfram ánni. Við höfum verið mjög dugleg við að skreppa niðrí bæ og skoða okkur um og ég rata orðið allveg fullkomlega miðsvæðis. Gaman hvað maður verður alltaf jafn hissa á þessari athygli sem maður fær, fólk starir í augun á manni enda eru við með mjög furðuleg og falleg augu að þeirra mati, húðliturinn er líka öfundsverður þó svo að mér finnst við vera nákvæmlega eins á litin. Ég og Fífa vöktum einmitt frekar mikla athygli þegar við löbbuðum inn í appel búð, án gríns þá gjörsamlega hættu allir að tala og störðu á okkur, við vorum fljót að koma okkur út þar sem þetta var heldur óþægilegt, en auðvtia ekki án þess að labba hring í mollinu og aftur út í gegnum sömu búð. Miðborgin er rosalega falleg, skil afhverju Ningbo 宁波 sé sögð ein fallegasta borg Kína, lítil mengun og allt mjög hreint. Tian yi 天一 torgið í miðju borgarinnar er rosalega fallegt, gosbrunnar út um allt og allar helstu fatabúðir heims við þetta torg og í nærliggjandi byggingum.







Starbucks einhver? Latte lítill á 25 yuan 远, það er geðveiki, kannski ekki mikið á íslenskan mælikvarða en stór máltíð á Makkanum er á 26 yuan, kaffi er svakalega dýrt hérna enda drekka flestir Te, ég leyfi mér nú einn og einn bolla. Svo er það bara að verða algjörlega asískur og kaupa vasatölvu orðabók, þær eru ekkert smá flottar og sniðugar, get skrifað inná táknin með sérstökum penna, hjálpar til þar sem maður sér ekki hljóðið út frá tákninu og það er erfitt að flétta þessu upp í venjulegri orðabók ef ég veit ekki hljóðið.



Fyrsti tíminn var í morgun, hann var áhugaverður, allt á kínversku að sjálfsögðu sem er frábært en getur verið þreytandi, leið svoldið eins og ég sæti í flugvél og væri með svakalega flugþreytu í allan morgun, Ég verð að leggja mig allan fram. Sakar samt ekki að það er eitthvað um myndarlegt fólk hérna, nefni engin nöfn enda kann ég það ekki en já myndar Japanni

ke-kou-ke-le 可口可乐 er hvað?


Myndir þegar ég get, netið eitthvað sló

5 comments:

Sveinn Enok sagði...

Hæ Elfar... ég er fyrstur að skrifa... face á margréti,,, ekkert smá kúl.... vá hvað ég ætla mér að koma og heimsækja þig... skemmtu þér vel, tala við þig seinna bæjó

Margrét sagði...

Face á þig Sveinn, ég á mér líf! Hangi ekki heima hjá fólki til þess að fá að éta.

Ok nei djók. Þú mátt koma og borða:$

En allavega, hæ Elfar:) Vildi bara segja wo ai ni og niao fei li xiao mao ma. Passaðu samt að alvöru kínverji sjái þetta ekki. Hann gæti orðið pínu fúll, þ.e.a.s. ef þetta er rétt skrifað:P

elisabeth sagði...

vúhúú loksins annað blogg - hlakka til að sjá myndir:D

eeen stutt komment núna darling! miss jú:*

Nafnlaus sagði...

Hæ darling, fylgist með þér, gott að þú ert ánægður. Hlakka til að lesa nýtt blogg. Frænka mín Guðmunda Áróra kom í naglasnyrtingu til mín fyrir helgi og hvæsti ekkert á mig. Hún var ekkert að kafna úr ánægju en lét sig hafa það, hún venst þessu. Love U miss U.
Hafdís frænka

Bjarni sagði...

Ellis pé.. þú ert dugnaðarforkur að blogga.. ha humm... hehe... þarf að fara að hitta á þig í netheimi...seejú ..yīhuìr jiàn :)