Jæja þá er ég kominn heim frá Sabah Borneo, þetta var hreint æði, eyddum fyrstu tveimur dögum í KK city, (malasíu búar eiga það til að stytta öll nöfn, KK stendur fyrir Kota Kinabalu (einnig nafn stærsta fjalls í þessum heims hluta, suða austur asíu) en önnur dæmi um styttingar eru PD Port Dickson, KL Kuala Lumpur, KT Kuala Terenganu, JB Johor Bahru osf) Við fórum að sjá frumbyggja, fengum að dansa með þeim og borða lifandi lifrur, skoða hauskúpurnar sem the head hunters söfnuðu hér áður fyrr og margt margt fleira, þvældumst um alla eyjuna, fórum og skoðuðum start búðirnar fyrir fjallgöngu upp á Mount Kota Kinabalu, sem er 4009m hátt. Gistum á mis góðum hótelum, Fórum til Sepilok og sáum þar Orang Utan endurhæfingarstöð, þar sem littlir munaðarlausir apar eru sendir og hjálpað þeim að komast aftur út í náttúruna, pöntuðum okkur nudd á hótelinu, (ekki apa nudd) flugum heim eftir eina nótt í Sandakan. Þetta var hreint stórkostleg ferð og rosalega gaman hjá okkur.
Bjarni fer að koma minna en mánuður í hann.
Svo er það Singapur eftir 2 vikur, indverskt brúðkaup vikuna þar á eftir, PD þar sem grátur búðirnar verða haldnar (end og stay camp, þar sem við eigum víst að sitja í hring grátandi og syngja leaving on a jet plane og heel the worl með michale jackson, hehe..
Nýustu diskarnir eru með: my chemical romance og Fall out boy. Mjög góðir báðir. búinn að hafa Fall out boy í nokkrar vikur og var að fjárfesta í My chemical romance í fyrra dag. Lofar mjög góðu
Læt heyra í mér seinna, er all svakalega bussí, þarf að gera svo margt áður en ég fer. Og ég vill Segja SÚPER DÚPER TAKK til mömmu og pabba fyrir að vera svona frábær við litlu peninga hakkavélina hann Elfar, þið eruð frábær.
Wo ai ni.

4 comments:
Litla peningahakkavélin ... vá hvað ég get heimfært það á sjálfa mig
kv. Þorbjörg
hehehe.. æjjji ég öfunda þig að vera alltaf að ferðast út um allar trissur og upplifa allskonar kjaftæði.
En sjitt var að fatta í gær hvað það er stutt í þig heim :) Fékk alveg í magan..
Love jú ;*
Wo ye ai ni
Sko ég er að læra eitthvað af þér elskan!:P
Oh ég hlakka svo til að sjá þig, ég ætla að kreista úr þér lifur og lungu!!
Skondnar hljómsveitir sem þú ert að hlusta á akkúrat núna!:P
lifandi lirfur??:O
en vá.. hlakka gegt til að fá þig heim:D:D
Sendu inn athugasemd