Kominn frá Singapore og það var æði, svo gaman að ferðast með krökkunum svo er singapore svo falleg og súper skipulögð, samt pínu scary þar sem allt er nánast bannað og allt rosalega strangt, bannað að vera með tiggjó, bannað að vera með eiturlyf, ohh ég þurfti að dumpa skammtinum í klósettið í lestinni.
Annars var mjög gaman, samt er ég mjög ánægður að búa í malasíu þar sem allt er helmingi dýrara í singapore. Fórum á alla helstu túrista staðina, Santosa Island, þar sem við fórum á ströndina og sáum höfrunga og eitthvað, svo fórum við down town þar sem allt er rosalega nútímalegt og risa háhýsi út um allt, svo var verslað pínu en bara nokkra minjagripi, allt svo dýrt þarna.
Jæja ég er á kafi í Singapore mynd í augnablikinu, heyrumst,,,, Nokkrar myndir að lokum
Damn ekki búinn að láta þær inn í tölvuna, næst þá bara
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comments:
31 dagur í Elfar! 31 dagur í Elfar!
Sendu inn athugasemd