
Uppáhalds teiknimyndaserían mín, úr the New Straits Times.
Ég sit hérna á rosalega flott kaffihúsi, ég gerði þá vitleysu að panta mér vatnsmelónudjús. Lífið er dásamlegt, ég held að ég sleppi því bara að koma heim, sit og drekk 30 kr kaffi í 30 stiga hita, ekki er það hægt heima. Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað ættli kettir hugsi um okkur, bara svo þið vitið þá er ég ekki að missa vitið, það er bara svo svakalega mikið af köttum hérna, liggjandi þvers og kruss út um allt, á götunum, gangstéttum, ofan á bílum, undir bílum, svo hef ég meira að segja komið að ketti inn í herberginu mínu, það var sko scary, sérstaklega þar sem þeir eiga það til að skjótast fram þegar maður labbar inn. Ekki eitthvað sem maður vill lenda í klukkan 3 um nóttina þegar maður skrapp á klósettið. Ég tel mig nú dýravin en upp á síðkastið hef ég fengið þá löngun til að myrða ákveðna 3 ketti sem virðast búa fyrir utan hjá okkur, og þar sem við erum ekki með útidyrahurð, bara hlið, þá eiga þeir það til að koma inn á kvöldin, þessir þrír kettir virðast eiga við einhver sálræn vandamál að stríða því þeir gefa frá sér ógeðslegustu hjóð sem ég hef heyrt, svoldið eins og það sé verði að stíga á barn, ég hef nú nokkrum sinnum komið brjálaður fram og hent öllu sem ég finn í þá til að reka þá út, gekk svo langt einu sinni að hlaupa á eftir þeim og skvetta vatni á þá. En samt virðast þeir ekki læra.
Uss þetta blogg átti ekki að fara í kettina (hundana haha). Annars fer núna að styttast í það að ég komi heim og enn styttra þangað til að Bjarni, Bjarni Bí Djóns, Jóhannesarborg kemur til mín, úhh hvað mig hlakkar til, það verður svaka stuð hjá okkur, ég er nú farinn að sakna ykkar allra svoldið, en bara pínku. Elsku vinir mínir, ég vill nú biðja ykkur samt sem áður að hlægja ekki af mér þegar ég kem heim, Íslenskan er orðin frekar léleg hjá mér, á orðið mjög erfitt með að mynda einfaldar setningar, bara það að skrifa þetta tekur svakalega á hjá mér. Og já svo hefur maður ábyggilega pikkað upp einhver furðuleg hljóð hérna úti, það eina sem ég man í augnablikinu er Aajuu, sem ég nota töluvert...
Ekkert meira frá mér í bili, ætla að nota tíman vel og reyna að finna eitthvað sniðugt til að blogga um næst, sérstaklega þar sem ég er orðinn expert skrópari, ætti ég að geta fundið mér tíma til að skrifa eitt og eitt blogg.

7 comments:
og þú með ofnæmi!!! Prófaðu pipar á staðina þar sem þeir koma inn. Annars er yndislegt að lesa bloggið þitt og mikið hlakka ég til að sjá þig í sumar. Kær kveðja Sonja frænka
hahaha elli elli elli... profadu ad sparka i tha ;) hahaha nei djok...ja jeg sjalfur veit ekki hvernig haskolalifid verdur jeg er buin ad skropa svo mikid ad jeg veit ekki hvort madur hondlar fulla tima ;)... annars baejo
Heh það verður ekkert svo mikil breyting, þú varst hvort sem er svo lélegur í íslensku áður.. Nei ok djók, það verður svaka gaman þegar þú kemur heim.. Partí partí, nei kannski ekki.. er hætt að drekka í bili! En ég hlakka til að fá þig heim! Horfa á friends og keyra í bjöllunni:) æi það verður æði!
Það tók mig næstum 2 ár að ná íslensku stafsetningunni aftur svo góða skemmtun þegar þú kemur á klakan að fara að tala íslensku ;)
Það lenda held ég allir skiptinemar í því að tapa smá íslenskunni en það kemur aftur
hehehehe djíses.... Ég er sko ekki cat-lover og það er ágætt að þú fáir katta fælni áður en þú kemur heim.. (þó ég elski minns eigin ketti )
En jáhh váá hvað það er stutt í að þú komir heim !!!!!!! Ég er alveg a' missa mig úr hamingju.
we will love jú þó þú talk bjagaða íslenska.... ;*
P.S MAgga ?? er bjallan ekki dáinn ????
bjallan dáin ó nei hún er sko full af lífi... bara aðeins í pásu :D
Elfar það vantaði þig svo innilega í þessar fermingar, sjitt - ég gat ekki skorið kökuna almennilega og leið bara eins og asna án þín fyrir aftan mig í þessu - Ég hlakka svooo til að fá þig heim aftur! Styttist, styttist!
Skemmtu þér :D
Kv. refurinn
Sendu inn athugasemd