Enn og aftur er ég staddur á kaffihúsi, sitjandi sötrandi kaffi og ferskan appelsínu djús, Ég gerði mér það til tilbreytingar að fara í skólann í morgun, það var víst ættlast til að ég tæki ákveðið ensku próf, það var bara stuð, sleppti reyndar ritgerðar partinum, ég var leit svoldið kjánalega út, þegar ensku kennarinn spurði mig, ný vaknaðan af værum blundi hvort ég gerði ekki ritgerðina, eina sem ég náði upp úr mínum hálf sofandi heila var “it’s boring” en sem betur fer er ég með svo fallegt bros að hún brosti bara til mín. Annars er ég bara að flakka um netið, uppfæra mig á síðum og skoða Eddie Izzard á youtube, hann er bara fyndinn... Og já þessar klippur hérna til hliðar eru úr hinum einstaklega skemmtilega sjónvarpsþætti TEMPO TEMTO, mjög svo skemmtilegur. Jæja svo dreymdi mér mjög furðulegan draum, í stuttu máli mamma að öskra á kínversku (sko íslenska mamma) og svo reyndi ég eitthvað að tjá mig til baka, ég man vel hvað ég sagði, “ni wo já læ” sem því miður meikar ekki mikinn sens, þíðir, “þú ég langar komdu” ég var að reina að spyrja hver ertu að fara, átti sem sagt að koma svona út “ ni chinalí” En já furðulegt að sjá móðir tjá sig á kínversku, ætli ég sé ekki búinn að vera hérna of lengi....
Ég er loks búinn að sjá Borat, hló vel að þeirri vitleysu, nokkur atriðu voru vel disturbing... ení hú sjáumst eftir um 2 mánuði....
Ps dreymdi risaeðlur í nótt, ég veit ekki hvað er í gangi með mig
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

12 comments:
já frá því að þú sagðir mér frá Eddie Izzard þá hef jeg verið að horfa á allt sem hann er búin að gera... og núna er jeg byrjaður að horfa á The Riches... en já risaeðla jeg meina varstu þú ekki þessi risaeðlu krakki ;) hahaha jeg var meira að kveikja í :D
Ég skal ráða þessa drauma fyrir þig.. Þú saknar mömmu þinnar, þú saknar þess að geta bara verið heima að leika sér að risaeðlum og tala kínversku án þess að flækja hlutina!
Allavega.. Hlakka til að fá þig.. Var að hugsa um daginn þegar ég var að hlusta á Total eclipse of the heart hvað ég hlakka til að faðma ykkur..:*
úff mér sýnist hausinn þinn vera farin í algjört rugl þarna úti. Hefur Malasía slæm áhrif á þig :S
Hae hae, hvad er málid med drauma á Íslandi en samt á nýja tungumálinu, mig hefur ekki dreymt á íslensku heillengi en samt eru flestir draumarnir á Íslandi. Mjog spes...
uss.. bara byrjaður að dreyma á kínversku:D
en það verður gaman að fá þig aftur heim:D hlakka til að sjá þig!
hérna í landi er búið að læsa youtube.. var verið að gera grín að kónginum og allt fór í vitleysu!
..viðkvæma fólk!
já 27 dagar í að ég fari heim.. langar ekkert fara heim á næstunni! Bara rugl..
sammála með íslenskuna.. verð hálf pirruð þegar ég er að tala í símann á íslensku.. ekki það auðveldasta í heimi!
tölvan öll í fokki hérna.. en þetta var ég Gréta þarna síðast..
Já Datt það í hug Gréta þegar ég las kónginn... hehe ið eruð víst pínu viðkvæm með hann þarna
hæhæ...gaman að allt gengur vel, hlakka til að sjá þig eftir nokkra mánuðu....
p.s ég er að fara heim 2 júni jibbí jeyyy:):)....ísland hér kem ég..hehe
mbk.
bynda:)
Ja hérna Elfar minn, held að það sé alveg kominn tími til að þú farir að komast heim - farinn að dreyma á kínversku og allt.. Það verður bara gaman hjá ykkur Bjarna. Hann er meira að segja farinn að stressast kappinn. Enda ekki nema rúmur mánuður í þetta. Takk fyrir commentið á heimasíðuna mína. Það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt, - vona að þú passir hann vel fyrir mig :o) knus og kossar Ollý pollý
Elfar, varstu búinn að sjá að á skiptnema síðunni ertu í Indlandi?
Ó já Sunna, og mér fannst það frekara fyndið hehe
Sendu inn athugasemd