laugardagur, mars 31, 2007

Previusly on Elfar:




Búðkaupið systur minnar: Vaknað eld snemma, þvældumst ut um allan bæ, fórum heim til brúðgumans, pósudum fyrir myndir, tekinn langur lúr, svo var það aðal veislan, þau voru voða sæt... myndir a www.picturail.com/elfarp

Terengganu: Við tókum rútuna klukkan 12 á miðnætti til Kuala Terengganu en þar áttum við að vera hjá nýjum fjölskildum í 2 vikur, ferðalagið byrjaði vel, við sváfum yfir okkur í rútunni og enduðum að fara um hundarð kílómetrum of langt, sem sagt 7 klukkutímar en ekki 6, okkur var hent út úr rútunni í einhverjum vegarkanti og þurftum að bíða til um klukkan níu hálf tíu um morguninn eftir næstu rútu. Svo var maður bara dreginn um allt og sýnt allt sem Terengganu hefur upp á að bjóða, Svo enduðum við þessar tvær vikur á því að fara til Redang Island, sem var bara frábært fórum að snorkla og sáum risa skjaldböku og 2 hákarla... Og já seinasta kvöldið skelltum við okkur á hótelbarinn, ég og Beate fengum okkur 2 kokteila hvor og svo var bara dansað við dúndrandi teknó tónlist og hina gestina, Beata skrapp á klósettið og eftir sat eg einn en ekki lengi þar sem ein af stelpunum fra Singapor var ekki lengi ad rétta út höndina og biðja mig um að dansa, endaði kvöldið þannig að við Beata vorum með sitthvortan dansfélagan, ég Kínverska stelpu frá Singapor og hún einn af the Diving instructors sem var já frekar framsækinn, viltu gefa mér koss, viltu koma með mér á ströndina, hvað er herbegisnúmerið þitt, við vorum fljót að bjarga henni.

Wolla núna eru þið allveg up to date. Eða svona næstum, leiðist að fara út í smáatriði, en annars hef ég það mjög gott, og er að vinna að brunkunni.

4 comments:

Berglind Rós sagði...

Sendu mér smá brúnku pósti, I need some!

Nafnlaus sagði...

Æ hvað þau eru sæt, hjónin!

Kv. Þorbjörg

Sveinn Enok sagði...

haej elfar :D 6 klukkutima of langt varstu ekki allveg bleeee eftir a... ooo aftur til baka.... heyrdu ja tvo kokteila ertu viss um ad their voru bara tveir ?? hahahaha kannski 4 eda fimm... se thig seinna elfar.

Margrét.. sagði...

Mér finnst alltaf jafn fyndið að þú sért þarna, þú ert svona allt á að vera hvítt, svart eða úr stáli:P Og ég var að skoða myndir frá heimilinu og þar er allt frekar litríkt og fullt af drasli og asískum munum:P

En þú verður vonandi fróðari og með opnari huga þegar þú kemur heim, ekki það að þú hafir eitthvað verið sérstaklega lokaður allsekki! Æi ég er bara farin að bulla!:P