Kínverskt Nýtt Ár: 18 – 25 febrúar. Sá stórmerkilegi atburður átti sér stað að fjölskildu fyrirtækinu var lokað í nokkra daga, það hefur ekki gerst einu sinni síðan ég kom hingað, það var frekara skrítið að hafa alla heima, sérstaklega þar sem ég á það til að sofa frekar langt fram eftir þegar ég get, sem er alls ekki eðlilegt í Malasíu, ég er að klöngrast allur úldin framúr í kringum eitt – tvöleitið. Allir vaknaðir og löngu búnir að borða,
Móðir mín hérna tók upp á því að við ættum að mála allt húsið og það daginn fyrir Kínverskt nýtt ár, þetta var frekara skrautlegt, myndum var rétt lyft af veggnum, og stundum var bara málað meðfram, mjög fljótlegt en, erfitt fyrir manneskju með fullkomnunaráráttu að gera, enda alinn upp af fullkomnunarsinna. Á nýja árinu er það siður hjá kínverjum að gefa Ang Pá, en það er umslag með peningum í, þegar einhver giftur frændi eða frænka mæta á svæðið eða maður fer heim til vina sinna á maður að segja Gong Xi Fa Cai og fær maður þá umslag að launum (þýðir gleðilegt nýtt ár). Fjölskilanda mín hélt grillveislu sem var mjög gaman, síðan daginn eftir beið okkar rúta sem átti að ferja alla familíuna, 30+ manns til Terenganu á Awana Resort Hótel (5 stjörnur) ekki amalegt það. Það var frekar spes að vera í rútu fullri af ættingjum, 8 klst síðar vorum við kominn. Ég skellti mér á kaffihús til að fagna 19 árum, daginn eftir var sólbaðsdagurinn mikli, þar sem mér tókst að skaðbrenndast svo illilega að það er ekki eðlilegt, ég gat ekki einu sinni farið í skó því ég var svo brunninn á fótunum, ég eyddi kvöldinu inná herbergi að horfa á mis skemmtilegar myndir, Lelo and Stitch stóð þó uppúr, Talandi um Lelo and Stitch þá var einmitt minst á Ísland í henni, líka í Fraicer þættinum í kvöld, gaman af því.
Á heimleiðinni var ákvað að stoppa í molli í Kuantan og eyða þar 3klst, 3 KLUKKUSTUNDIR! Og ég svo brenndur að ég labbaði um mollið berfættur með skónna í höndunum, ég fékk þó nokkur “kjána hvíti maður” look frá heimamönnum.
Svo núna síðustu daga hef ég verið að dunda mér við að flagna eins og mér sé borgað fyrir það...
Bless bless..
P.S – Mér dreymdi mjög furðulegan draum, í stuttu máli var Margrét L ólétt, ég var pabbinn, við vorum samt bara vinir, ég var á leiðinni til Paragvæ sem skiptinemi í annað sinn með Sveini og ég var að reyna að komast undan því með að reyna að sannfæra Svein að ég þyrfti kannski að vera heima þegar frumburðurinn minn fæddist.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

11 comments:
Ég skellt uppúr þegar ég las þetta síðasta!
Elfar ég verð samt að játa það að ég er ólétt og þú ert faðirinn. Það gerðist meira í sumarbústaðarferðinni en þú heldur.
Plís ekki fara til Paragvæ, ég þarf á þér að halda varðandi Elfar Svein Jr.
Ok esskan?
HAe hae, til hamingju med afmaelid:)
Gott ad vita ad tú ert enntá med mjog fjorugt ímyndunarafl.
hahaha elfar svein jr.... og full ruta af aettingjum... og skritna hvitna manna lookid... jeg get sko sagt ther ad jeg fae thad daglega herna.... hahaha..
Ég ætla rétt svo að heimta að frumburðurinn muni bera mitt nafn, það er sama hvaða kyn það er. EF þa dyrfist að verða strákur þá var honum bara nær og hann getur rétt svo drullast til Þess að heita Berglind Rós annars mun ég gera líf hans að hreinasta helvíti. Ekki að bekkjarsystkyni hans myndu ekki gera líf hans að helvíti héti hann Berglind, en ég myndi gera það verra;)
hahahhaha ... þú ert svo mikill pleijer.. Barnandi Margréti en vilt svo bara vera vinur hennar.. usssssssssssss
En þú ert bjútífool, flagnandi eður ei.. still bjútífol kjáni aríamaður
hahhaahahahhahahahah "ég þyrfti kannski að vera heima þegar frumburðurinn minn fæddist"
Þú átt eftir að vera frábær pabbi einn daginn.
Hæ Elfar. Hjúkk að ég fann þig loksins! Ég er að gera könnun fyrir Óla skóla og vantar endilega að þú sendir mér e-mail svo að ég geti sent þér þessa könnun sem er fyrir alla sem útskrifuðust í fyrra. Rosa gaman :)
Gott að heyra að þér gengur vel í Malasíu. Er Luis Miguel ekkert vinsæll þar?? hehe... allavega máttu skrifa mér á mariaatthradbrautpunkturis og ef þú veist adressur hjá fleirum af þessu útlanda liði þá skal ég fá þær líka. Er samt búin að finna Berglindi, en t.d. ekki hann Svein Enok Senior.
Bestu kveðjur, María spænskukennari.
ps. lofa að ég skal ekkert lesa bloggsíðurnar ykkar, varð bara að finna þig :)
Blessaður Elfar, Gústi stóri litli frændi her vildi bara senda þer kveðju gaman að sjá að u ert að njóta allt í botn. Njóttu ogfarðu'vel með þig frændi, o vertu góður við allar þessar píur þarna, ég held að þær eigi erfitt með að höndla okkur playera úr Hreiðars ætt heheh kann ekki að gera broskall en farðu vel með þig
Jæja Elfar minn, hvernig væri að fara að skrifa hingað inná til tilbreytingar? Ég bíð spennt!
Kv. Þorbjörg
Bara með smá tilkynningu til þeirra sem lesa þessa síðu..Elfar er farin í tvær vikur að búa með malasískri fjölskyldu og það var ekki víst að hann hefði netið. Það er samt hægt að hringja í hann í gemsan hans.
svona elfar a ekki ad fara ad blogga
Sendu inn athugasemd